Eigendur Ferðaþjónustunnar Tangahúsi á Borðeyri bjóða þig velkomin(n). Það að gista og dvelja í einu minnsta þorpi á Íslandi, sem á sér þó merka sögu gerir ferðina eftirminnilega. Á Borðeyri er hægt að njóta náttúrunnar í hvívetna. Staðsetning Tangahúss er sérstaða þess. Það stendur svo til í fjöruborðinu og með slíka nálægð við dýralíf fjöru og sjávar er alltaf eitthvað spennandi að gerast. Friðsemd og kyrrð ríkir og hið nýja hugtak "hægur ferðamáti" (e: slow travel) á vel við á þessum stað. Engir umferðarhnútar á götum og nóg af súrefnisríku lofti til að anda að sér. Tangahús er reyklaus gististaður og eigendur þess leggja sig fram um að nota umhverfisvænar hreinlætisvörur þar.
Í boði er: uppbúin rúm, svefnpokapláss, barnarúm, mjög gott gestaeldhús búið öllum helstu tækjum, setustofa, sjónvarp,nettenging, góður bókakostur, sturtur, þvottavél/þurrkari, hjólageymsla og góð aðstaða til fuglaskoðunar.
Það verður vel tekið á móti þér.
Með kveðju.
Ásdís og Ingibjörg Rósa gestgjafar í Tangahúsi.
Takk fyrir að heimsækja heimasíðu Ferðaþjónustunnar Tangahúsi Borðeyri.